Fyrra markmiðið virðist vera einfalt
en ég veit að það getur verið erfitt að ná því. Málið er að það ganga fleiri félagar út úr hreyfingunni á hverju ári en inn.
Ein ástæðan er að þeir finna sig ekki í klúbbnum, klúbbstarfið er tilbreytingalaust, engin verkefni eða of erfið verkefni,
fundir illa undirbúnir og það er bara leiðinlegt á fundum. Ýmsar leiðir eru í boði til að ná Plús einn markmiðinu. Sú einfaldasta
er að efla rækt við félagana og gera klúbbstarfið skemmtilegt og áhugavert.
Ef við ætlum að halda í félagana þá þarf starfið að vera áhugavert. Það þarf að brjóta upp gamlar
hefðir og hleypa nýjum hugmyndum að. Ef við erum ánægð í okkar klúbbi og okkur finnst klúbbstarfið skemmtilegt og gefandi
þá gerist það sjálfkrafa að við tímum ekki að hætta og förum að leita að fleiri félögum. Þannig sköpum við góða og öfluga
klúbba. Lausnin er að leggja rækt við klúbbfélagana okkar.
Seinna markmiðið getur verið heldur
erfiðara að ná, en til þess þarf að stofna einn klúbb í hvoru umdæmi. Til að stofna nýjan klúbb þarf maður að finna a.m.k.
20 nýja Lionsfélaga og Lionsklúbb sem vill vera móðurklúbbur þessa nýja klúbbs. Kannski er hægt að fara styttri leið og stofna
deild innan klúbbs. Það hefur gefist vel, sem sést á Reykhóladeild Lionsklúbbs Búðardals.
Á síðastliðnum tveimur árum hafa verið
stofnaðir tveir Lionsklúbbar, Lionsklúbbur Skagastrandar og Lionsklúbburinn Úlfar. Þetta sýnir að það er hægt að ná þessu
markmiði. En hvernig fer maður að því? Jú, maður setur sér markmið, undirbýr sig vel og fer svo af stað. Byrjar á því að finna
sér félaga til að vinna með og setur saman vinnuhóp, finnur móðurklúbb og markhóp, t.d. hverfi í þéttri íbúðabyggð eða hóp
af fólki sem vinnur að sameiginlegum málefnum eins og unglingamálum, skólamálum eða veikindum barna. Síðan er að auglýsa kynningarfund
með dreifibréfi og loks halda kynningarfundinn þar sem maður fær áhugasamt fólk sem vill leggja öðrum lið um leið og það fær
tækifæri að þroska sig sjálft og kynnast nýju og skemmtilegu fólki. Önnur leið er maður á mann aðferðin, en sú leið tekur
yfirleitt lengri tíma. Svo er hægt að blanda þessum leiðum saman. Aðalatriðið er að fara af stað með verkefnið í stað þessa
tala og tala.